Það var útsala í Húsasmiðjunni og bíll í nánast hverju stæði.
Ég varð því að leggja bílnum fjær dyrunum en ég hefði kosið.
Síðan opnaði ég góða rifu á bílrúðurnar því Golden Retriever hvolpurinn sem ég var nýbúinn að eignast, þurfti auðvitað ferskt loft. Greyið hafði teygt úr sér í aftursætinu og ég ætlaði að koma honum í skilning um að þar ætti hann að vera kyrr.
Til að byrja með, gekk ég afturábak eftir stéttinni og kallaði til hans með skipandi röddu: “Kyrr ! – Heyrirðu það. “Kyrr-Kyrr”
Unga ljóskan sem sat undir stýri í nálægum bíl, horfði einkennilega á mig og sagði svo:
“Settann bara í “PARK”? !!!!!

#1 by dofri on 21 febrúar, 2010 - 15:09
Hér hafa reyndar gist ljóskur, – Labrador ljóskur.
#2 by Árni Gunnarsson on 21 febrúar, 2010 - 15:06
Sæll félagi.
Þetta er þrusugóð síða. Geta ljóskur ekki fengið gistingu hjá þér?
Kv. ÁG