Ég tek aðeins hunda sem hafa verið hjá mér áður.
Dofragisting er gististaður fyrir hunda. Sumir kalla þetta hundahótel en það er samt dálítið annað. Dofragisting er hundagisting inni á „venjulegu“ heimili þar sem fyrir er einn hundur (sjá hér) og aðeins teknir tveir hundar á hverjum tíma. Staðsetningin er í alfaraleið í Reykjavík (sjá hér).
Hundar sem koma í gistingu eiga að vera sprautaðir og ormahreinsaðir.
Ég get ekki tekið lóðatíkur og ÉG Á EKKI POSA.
Verð fyrir sólarhringsgistingu (næturgistingu) er kr 2500. Innifalið það fæði sem er í boði á staðnum (breytilegar tegundir af góðu þurrfóðri). Um jól og áramót, frá og með 21. desember til og með 6. janúar, kostar gistingin kr. 3500/slhr.